Öruggt hjá Rhein-Neckar Löwen í Bosníu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. október 2009 18:29 Guðjón Valur Sigurðsson í leik með Rhein-Neckar Löwen. Nordic Photos / Getty Images
Rhein-Neckar Löwen vann í dag öruggan fimmtán marka sigur á Bosna Sarajevo í Meistaradeild Evrópu í dag, 39-24. Liðið er því með fimm stig af sex mögulegum í B-riðli. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen, Ólafur Stefánsson tvö og Guðjón Valur Sigurðsson tvö. Sigurinn var afar öruggur eins og tölurnar gefa til kynna og var munurinn strax orðinn fimmtán mörk eftir 40 mínútna leik. Þá var staðan 30-15. Það var einnig leikið í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Füchse Berlín vann sigur á Düsseldorf, 32-27. Rúnar Kárason komst þó ekki á blað hjá fyrrnefnda liðinu en Dagur Sigurðsson er þjálfari þess. Sturla Ásgeirsson skoraði eitt mark fyrir Düsseldorf í leiknum. Þá vann Minden þriggja marka sigur á Balingen, 22-19. Ingimundur Ingimundarson skoraði tvö mörk fyrir Minden og Gylfi Gylfason eitt. Füchse Berlin er í áttunda sæti deildarinnar með átta stig, Minden því þrettánda og Düsseldorf í neðsta sætinu með eitt stig. Þá skoraði Einar Ingi Hrafnsson eitt mark fyrir Nordhorn sem tapaði fyrir Empor Rostock á útiveli í þýsku B-deildinni, 28-26. Nordhorn er í áttunda sæti norðurriðils deildarinnar. Í sama riðli vann Ahlener sigur á Post Schwerin, 37-34. Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Ahlener en liðið er þriðja sæti riðilsins. Að síðustu má nefna að Kadetten Schaffhausen, lið Björgvins Pals Gústavssonar markvarðar, vann sinn áttunda sigur í svissnesku úrvalsdeildinni í dag í jafn mörgum leikjum. Liðið vann öruggan sigur á Kriens-Luzern, 33-25.
Handbolti Mest lesið Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Uppgjörið: Fram - Haukar 27-26 | Heimakonur unnu æsispennandi leik Sjá meira
Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti
Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Handbolti