Körfubolti

Bárður: Lögðum okkur fram

Ragnar Vignir skrifar
Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis.
Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis.
Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis, var sáttur við sína menn þrátt fyrir að liðið tapaði fyrir Njarðvík á heimavelli í kvöld, 73-64.

„Við lögðum okkur fram," sagði Bárður. „Varnarleikurinn var ágætur hjá okkur og góðu fréttirnar voru þær að við fengum færri en 80 stig á okkur. Við vorum þar að auki alls ekki slæmir í okkar sóknarleik. Við sköpuðum okkur fullt af góðum færum sem ekki tókst að nýta. Ég vona að mesta spennan sé farin úr leikmönnum og þá munum við nýta þessi færi betur."

Bárður segist vongóður um framhaldið. „Þetta hefur verið erfið byrjun hjá okkur en við erum hvergi hræddir. Þetta er langt mót og það er nóg eftir."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×