Stórleikur Brenton Birmingham dugði ekki í Hólminum 1. mars 2009 21:06 Brenton Birmingham átti frábæran leik í Hólminum í kvöld en varð að sætta sig við tap Mynd/BB
Grindvíkingar töpuðu sínum þriðja leik í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld þegar þeir sóttu Snæfell heim í Stykkishólm. Leikurinn var æsispennandi en svo fór að lokum að Jón Jónsson tryggði heimamönnum 89-88 sigur með körfu þegar níu sekúndur voru til leiksloka. Grindvíkingar fengu tækifæri til að klára leikinn í lokin en skot Arnars Jónssonar vildi ekki niður. Heitasti maður vallarins, Brenton Birmingham gat ekki tekið þátt í síðustu sókn Grindvíkinga þar sem hann var nýfarinn af velli með sína fimmtu villu. Lucius Wagner skoraði 22 stig fyrir Snæfell, Sigurður Þorvaldsson 20, Jón Jónsson 17 og Hlynur Bæringsson 15. Snæfell styrkti með sigrinum stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar. Brenton Birmingham var stórkostlegur í liði Grindavíkur og skoraði 48 stig, þar af níu þriggja stiga körfur. Páll Axel Vilbergsson og Nick Bradford skoruðu samanlagt 14 stig í leiknum. ÍR vann nauman sigur á FSu í Seljaskóla 83-80 og Þór slátraði botnliði Skallagríms fyrir norðan 140-66. Staðan í Iceland Express deild karla
Dominos-deild karla Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Íslenski boltinn „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Íslenski boltinn Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo Fótbolti „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira