Benitez ekkert heyrt af orðrómum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. febrúar 2009 23:02 Rafa Benitez í leiknum í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Rafa Benitez sagði eftir sigur sinna manna í Liverpool á Real Madrid í Meistaradeildilnni í kvöld að hann viti ekkert um þann orðróm sem gekk um að hann yrði senn rekinn frá félaginu. Fjallað var mikið um það í enskum fjölmiðlum í dag að sá orðrómur væri á kreiki að eigendur Liverpool ætluðu sér að reka Rafa Benitez knattspyrnustjóra. „Ég vissi ekkert um þetta. Ég var að tala við vini mína í Madríd og einbeita mér að leiknum," sagði Benitez sem neitaði því einnig að orðrómurinn væri sannur. „Nei, ég var bara að hugsa um leikinn." „Það eru margir mikilvægir leikir framundan og vil ég einbeita mér að þeim. Ég verð svo í sambandi við eigendur félagsins." Benitez hefur hingað til neitað að skrifa undir nýjan samning við félagið og talið er að hann fari fram á það að hafa algert úrslitavald yfir öll mál sem lúta að leikmannasölum og -kaupum. Jamie Carragher, leikmaður Liverpool, gaf einnig lítið fyrir fréttir dagsins. „Ég fékk SMS um þetta en það hefur ýmislegt verið sagt um Liverpool í gegnum tíðina og er þetta bara eitt af því. Þetta er orðrómur sem er ekki sannur." Hann var ánægður með úrslit leiksins í kvöld. „Þetta var einmitt það sem maður vill - mark á útivelli og halda hreinu. En nú er aðeins hálfleikur í þessari rimmu og þeir vita nákvæmlega hvað þarf að gera."
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Sjá meira