Körfubolti

Njarðvík mætir KR í Subwaybikarnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik KR og Njarðvíkur í fyrra.
Úr leik KR og Njarðvíkur í fyrra.

Í dag var dregið í 32-liða úrslit í Subwaybikar karla. Allir gátu mætt öllum og úr varð að 32-liða úrslitin bjóða upp á stórleiki.

Sá stærsti verður viðureign Íslandsmeistara KR og Njarðvíkur í Ljónagryfjunni í Njarðvík.

Stjarnan tekur á móti Keflavík í Ásgarði og er það ekki síður áhugaverð rimma. Úrvalsdeildarliðin sem spáð er falli, Breiðablik og FSu, mætast síðan í Kópavogi.

Drátturinn:

KR b - Valur

ÍA - Ármann

Haukar - ÍR

Hekla - KFÍ

ÍG/Fjölnir b - Grindavík

Mostri - Hamar

Breiðablik - FSu

Álftanes - Snæfell

Njarðvík - KR

Þór Ak. - Skallagrímur

Stjarnan - Keflavík

Keflavík b - Hrunamenn

Valur b - Tindastóll

Laugdælir - Höttur

Reynir S./Leiknir R. - ÍBV/Grindavík b

Fjölnir - Skallagrímur b

Leikirnir fara fram þann 7. og 8. nóvember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×