Handbolti

HK-ingar í undanúrslitin eftir öruggan sigur á Selfossi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Víðir Ólafsson skoraði 9 mörk fyrir HK.
Ólafur Víðir Ólafsson skoraði 9 mörk fyrir HK.
HK-ingar eru komnir áfram í undanúrslit Eimskipsbikars karla eftir sjö marka sigur á 1. deildarliði Selfoss á Selfossi í kvöld. HK verður því pottinum ásamt Haukum sem unnu FH í tvíframlengdum leik í dag en hinir tveir leikirnir fara fram á morgun.

Ólafur Víðir Ólafsson skoraði 9 mörk fyrir HK og þeir Ragnar Hjaltested, Már Þórarinsson, Valdimar Þórsson og Hákon Bridde voru allir með þrjú mörk.

Atli Kristinsson skoraði 7 mörk fyrir Selfoss.

Það dugði ekki Selfyssingum að Sebastian Alexandersson varði 22 skot í markinu því Sveinbjörn Pétursson jafnaði hann út með því að verja 22 skot í HK-markinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×