Körfubolti

IE-deild karla: Enn eitt tapið hjá Grindavík

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er farið að hitna undir Friðriki Ragnarssyni, þjálfara Grindavíkur.
Það er farið að hitna undir Friðriki Ragnarssyni, þjálfara Grindavíkur. Mynd/Daníel

Fyrir tímabilið bjuggust flestir við því að Grindavík myndi rúlla upp Iceland Express-deild karla. Þá pressu eru Grindvíkingar engan veginn að höndla því hvorki gengur né rekur hjá Suðurnesjaliðinu.

Í kvöld tapaði liðið sínum þriðja leik á tímabilinu en liðið hefur aðeins unnið tvo leiki. Að þessu sinni töpuðu Grindvíkingar á heimavelli gegn Hamri.

Hamarsmenn leiddu allan leikinn og lengstum með gott forskot. Það var ekki fyrr en í fjórða leikhluta að Grindvíkingar gerðu smá áhlaup en komust samt ekki nógu nálægt gestunum sem unnu óvæntan sigur.

Úrslit kvöldsins:

Grindavík-Hamar  77-87 (29-41)

Stig Grindavíkur: Þorleifur Ólafsson 32, Páll Axel Vilbergsson 11, Brenton Birmingham 10 (10 fráköst), Arnar Freyr Jónsson 8, Björn Brynjólfsson 6, Guðlaugur Eyjólfsson 6, Ómar Sævarsson 2, Ólafur Ólafsson 2.

Stig Hamars: Andre Dabney 34, Marvin Valdimarsson 21, Svavar Pálsson 12, Viðar Hafsteinsson 10, Páll Helgason 6, Oddur Ólafsson 2, Ragnar Nathanaelsson 2.

FSu-Keflavíkur  63-75 (24-42)

Stig FSu: Corey Lewis 20 (10 fráköst), Chris Caird 16, Dominic Baker 9, Jake Wyatt 8, Alexander Stewart 4, Orri Jónsson 3, Hilmar Guðjónsson 2, Ari Gylfason 1.

Stig Keflavíkur: Rashon Clark 24 (12 fráköst). Sigurður Þorsteinsson 15 (10 fráköst), Gunnar Einarsson 14, Gunnar Stefánsson 6, Davíð Jónsson 6, Axel Margeirsson 3, Elentínus Margeirsson 3, Þröstur Jóhannsson 2, Sverrir Sverrisson 2.

Snæfell-Fjölnir  109-79 (62-41)

Stig Snæfells:
Hlynur Bæringsson 32 (12 fráköst), Sigurður Þorvaldsson 27, Sveinn Davíðsson 17, Jón Ólafur Jónsson 14 (11 fráköst), Kristján Andrésson 7, Emil Jóhannsson 7, Páll Helgason 3.

Stig Fjölnis: Chris Smith 33 (13 fráköst), Garðar Sveinbjörnsson 11, Tómas Tómasson 10, Níels Dungal 8, Ægir Steinarsson 7, Magni Hafsteinsson 6, Arnþór Guðmundsson 4.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×