Körfubolti

Marvin með 35 stig í sigri Hamars á Breiðabliki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marvin Valdimarsson lék vel í kvöld.
Marvin Valdimarsson lék vel í kvöld. Mynd/ÓskarÓ

Marvin Valdimarsson skoraði 35 stig í mikilvægum ellefu stiga sigri Hamars á Breiðabliki, 89-78, í Hveragerði í Iceland Express deild karla í kvöld. Hamarsmenn lögðu grunninn að sigrinum með góðum þriðja leikhluta sem þeir unnu 28-15.

Blikar byrjuðu ágætlega en Hamar náði góðum spretti fyrir hálfleik og voru 44-41 yfir í leikhhlék. Hamar stakk síðan af í þriðja leikhluta og var komið sextán stigum yfir fyrir lokaleikhlutann.

Marvin Valdimarsson fór á ný fyrir liði Hamars og var með 35 stig og 10 fráköst og Andre Dabney bætti við 26 stigum. Dabney skoraði 21 stig í fyrri hálfleik og hélt þó sóknarleik Hamars á floti.

Nýju mennirnir hjá Blikum, Jonathan Schmidt og Jeremy Caldwell voru stigahæstir hjá Blikum ásamt Hjalta Friðrikssyni en þeir skoruðu allir 15 stig. Caldwell var einnig með 17 fráköst og 10 fiskaðar villur.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×