Handbolti

Stórir sigrar í N1-deild kvenna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Íris Ásta Pétursdóttir í leik með Val.
Íris Ásta Pétursdóttir í leik með Val. Mynd/Vilhelm
Þrír leikir fóru fram í N1-deild kvenna í dag. Úrslit leikjanna voru öll eftir bókinni og unnust nokkuð stórt.

Valur er enn með fullt hús stiga eftir öruggan sigur á FH í dag. Valur er í efsta sæti deildarinnar með tíu stig, rétt eins og Stjarnan en Valur á þó leik til góða.

Stjarnan vann í dag KA/Þór á Akureyri en síðarnefnda liðið er enn stigalaust á botni deildarinnar, rétt eins og Víkingur.

Þá vann Fylkir stórsigur á HK í dag og er í fjórða sæti deildarinnar með fjögur stig. HK er í sjöunda sætinu með tvö stig.

Umferðinni lýkur svo á morgun með leik Hauka og Fram á Ásvöllum. Leikurinn hefst klukkan 14.00.

Úrslit og markaskorarar:

KA/Þór - Stjarnan 19-32



Mörk KA/Þórs
: Inga Dís Sigurðardóttir 7, Martha Hermannsdóttir 4, Unnur Ómarsdóttir 3, Katrín Vilhjálmsdóttir 2, Emma Havin Sardardóttir 2, Arna Valgerður Erlingsdóttir 1.

Mörk Stjörnunnar: Alina Tamasan 9, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 8, Elísabet Gunnarsdóttir 4, Esther Ragnarsdóttir 3, Jóna Halldórsdóttir 2, Þórhildur Gunnarsdóttir 2, Þorgerður Atladóttir 2, Indíana Jóhannsdóttir 1, Aðalheiður Hreinsdóttir 1.

FH - Valur 16-25

Mörk FH: Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 5, Ingibjörg Pálmadóttir 4, Berglind Ósk Björgvinsdóttir 3, Birna Íris Helgadóttir 2, Birna Berg Haraldsdóttir 1, Arnheiður Guðmundsdóttir 1.

Mörk Vals: Ágústa Edda Björnsdóttir 6, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 6, Rebekka Skúladóttir 5, Elsa Rut Óðinsdóttir 2, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Soffía Rut Gísladóttir 1, Kolbrún Franklín 1, Kristín Guðmundsdóttir 1, Arndís María Erlingsdóttir 1.

Fylkir - HK 32-16

Mörk Fylkis: Sigríður Hauksdóttir 6, Sunna María Einarsdóttir 4, Hildur Harðardóttir 4, Sunna Jónsdóttir 4, Nataly Valencia 4, Elín Helga Jónsdóttir 2, Tinna Soffía Traustadóttir 2, Ela Kowal 2, Anna Sif Gunnarsdóttir 1, Hildur Björnsdóttir 1, Karitás Sigurðardóttir 1, Áslaug Gunnarsdóttir 1.

Mörk HK: Elísa Ósk Viðarsdóttir 7, Elín Anna Baldursdóttir 3, Lilja Lind Pálsdóttir 2, Gerður Arinbjarnardóttir 1, Guðrún Erla Bjarnadóttir 1, Heiðrún Björk Helgadóttir 1, Líney Rut Guðmundsdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×