Bradford: Líklega minn besti leikur á Íslandi 9. apríl 2009 21:46 Nick Bradford átti einhvern besta leik sem sést hefur í lokaúrslitunum í kvöld
Nick Bradford átti eftirminnilegan stórleik í kvöld þegar Grindavík tók KR í kennslustund á útivelli 107-94 í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi Iceland Express deildarinnar. Bradford skoraði 47 stig, hirti 8 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og stal 4 boltum í leiknum og átti stóran þátt í óvæntum sigri gestanna. Lokatölur leiksins gefa í raun ekki rétta mynd af gangi leiksins, því Grindavíkurliðið náði mest 27 stiga forystu í leiknum og var sigurinn aldrei í hættu þó KR næði að laga stöðuna í lokin. Bradford hefur aldrei tapað einvígi í úrslitakeppni hér á landi, en hann lék áður með meistaraliði Keflavíkur. "Jú, líklega var þetta minn besti leikur á Íslandi til þessa. Ég hef átt fína alhliðaleiki en hvað stigaskorun varðar var þessi leikur líklega sá besti. Ég fann mig mjög vel í þessum leik og það var líka gaman að eiga svona leik á útivelli," sagði Bradford í samtali við Vísi. "Það var varnarleikurinn okkar sem lagði grunninn að þessum sigri í dag. Við getum alveg spilað vörn og sýndum það í þessum leik. Næsti leikur er úrslitaleikur fyrir okkur alveg eins og þá, því við viljum ekki þurfa að koma hingað aftur," sagði Bradford.
Dominos-deild karla Mest lesið „Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn“ Körfubolti Æfur yfir sniðgöngunni: „Að mínu mati er þetta skandall“ Sport Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar Handbolti Valdi Ísland ekki Danmörku: „Snerist um hvað mig langaði mest að gera“ Fótbolti Hentu yfir hundrað þúsund böngsum inn á völlinn Sport Situr inni með morðingjum og misyndismönnum í fangelsi hinna frægu Fótbolti Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur Golf Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt Enski boltinn Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal Enski boltinn Öskraði í miðju vítaskoti Körfubolti Fleiri fréttir Fóru í leikinn Hvar spilar hann? Skoraði ótrúlega sigurkörfu fyrir aftan miðju Öskraði í miðju vítaskoti „Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn“ „Kannski bara ágætt að tapa einum og ná jarðtengingu“ Uppgjörið: Valur - Tindastóll 73-64 | Valskonur kældu Stólana niður Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Haukar 75-82 | Haukakonur juku forskotið „Við lokuðum á allt sem þær reyndu að koma með í endann“ Sjötíu daga bið lengist enn eftir frábæra endurkomu Hamars/Þórs Misstu Kolbrúnu meidda af velli en tókst samt að enda taphrinuna Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Mætti í körfuboltakjól á hliðarlínuna Medina með rosatölur þegar Hamar vann toppliðið Körfuboltakvöld: Geta Tindastólstelpurnar orðið Íslandsmeistarar? „Er þetta einn af þreyttustu leikmönnunum í NBA?“ Hrafn frá KR í Stjörnuna Unnu fimmtánda leikinn í röð þegar meistararnir komu í heimsókn Njarðvík á að stefna á þann stóra Körfuboltakvöld. Framlenging 12. umferðar Uppgjörið: Keflavík - Valur 77-65 | Anna Ingunn reyndist Keflavík dýrmæt á ögurstundu Aðallega þeir tveir sem við erum að spenntir að fá inn í þetta Uppgjörið: Valur - Stjarnan 83-79 | Nokkuð óvæntur sigur heimamanna Martin glímir við meiðsli í hásin Allt er fertugum LeBron fært „Þetta er það sem gerir þá öðruvísi en önnur lið“ Tryggvi Snær öflugur en það dugði skammt Tindastóll upp fyrir Njarðvík Haukar og Hamar/Þór með góða sigra Uppgjörið: Grindavík - Þór Ak. 64-84 | Þór hafði betur í Smáranum Sjá meira