Umfjöllun: Bikarmeistararnir lagðir af Keflvíkingum Elvar Geir Magnússon skrifar 8. nóvember 2009 21:27 Keflavík sigldi í sextán liða úrslit bikarsins í kvöld.
Það er ljóst að Stjörnumenn munu ekki verja bikarmeistaratitil sinn í körfubolta en þeir voru slegnir út af Keflvíkingum í kvöld. Suðurnesjaliðið gerði góða ferð í Garðabæinn og vann 97-76 útisigur. Búið var að draga fram bikarinn sjálfan og hann hafður fyrir augum áhorfenda. Það er um að gera fyrir Garðbæinga að njóta hans meðan hægt er. Fannar Freyr Helgason er á meiðslalistanum og augljóslega sárt saknað í Stjörnuliðinu. Keflvíkingar léku hörkufína vörn og nýttu sér hæðarmuninn undir körfunni. Þeir náðu að koma fram hefndum en Stjörnumenn unnu deildarleik þessara liða fyrr í vetur. Lítil spenna var í leiknum í kvöld og sigur Keflavíkur í raun aldrei í hættu. Liðið var betra á flestum sviðum og vann öruggan og fyllilega verðskuldaðan sigur. Keflvíkingar voru með tökin allan tímann og höfðu tólf stiga forystu í hálfleik. Þeir hleyptu síðan Garðbæingum aldrei nálægt sér í seinni hálfleiknum og sigldu örugglega inn í sextán liða úrslit Subway-bikarkeppninnar. Stjarnan - Keflavík 76-97 Stigahæstir hjá Stjörnunni: Justin Shouse 31, Jovan Zdravevski 20, Magnús Helgason 11. Stigahæstir hjá Keflavík: Gunnar Einarsson 27, Rashon Clark 19, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 19, Hörður Axel Vilhjálmsson 14.
Dominos-deild karla Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Handbolti Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn