Körfubolti

Umfjöllun: Draumabyrjun Sigurðar með Njarðvík

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Friðrik átti þokkalegan leik með Njarðvík í kvöld.
Friðrik átti þokkalegan leik með Njarðvík í kvöld. Mynd/Arnþór

Sigurður Ingimundarson þreytti frumraun sína sem þjálfari Njarðvíkur í kvöld er hans menn sóttu ÍR heim í íþróttahús Kennaraháskólans. Frumraunin gekk vel því Njarðvík vann öruggan sigur, 70-88.

ÍR-ingar komnir á nýjan heimavöll þar sem þeir eru orðnir þreyttir á að spila á dúk í Breiðholtinu. Parket er á gólfinu í Kennaraháskólanum en lítið annað og húsið varla boðlegt fyrir leik í efstu deild.

Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta. Hreggviður Magnússon var sjóðheitur og setti niður hvern þristinn á fætur öðrum en hann skoraði 11 af fyrstu 13 stigum ÍR-inga.

ÍR-ingar voru reyndar fullkappsmiklir á köflum og Sveinbörn Claessen mátti þakka fyrir að hanga inn á vellinum er hann sparkaði í andlit Páls Kristinssonar. Ljótur leikur hjá Sveinbirni.

Njarðvík gaf heimamönnum samt ekkert eftir og var aðeins einu stigi á eftir, 25-24. Gestirnir spiluðu fína vörn í öðrum leikhluta og náðu forystu fyrir leikhlé, 37-44.

Þriðji leikhlutinn var lyginni líkastur. Njarðvík spilaði ótrúlega sterka vörn og ÍR kom vart góðu skoti á körfuna. Fyrsta stig heimamanna í leikhlutanum kom ekki fyrr en eftir rúmar 5 mínútur og það af vítalínunni. Fyrstu stig heimamanna í leikhlutanum utan af velli kom þegar 2.20 mín voru eftir af leikhlutanum.

Eftir þriðja leikhlutann var staðan 46-69 og síðasti leikhlutinn var aldrei spennandi.

Hreggviður var flottur í liði ÍR-inga en vantaði sárlega aðstoð frá fleiri félögum sínum. Nemanja Sovic olli miklum vonbrigðum og fann sig engan veginn. Kristinn Jónsson var í tómu tjóni þangað til hann reiddist og þá fór hann að spila hörkuvel. Félagar hans verða því að muna að pirra hann rækilega fyrir næsta leik.

Magnús Þór Gunnarsson og Jóhann Árni Ólafsson voru sterkastir í liði Njarðvíkinga en Jóhann var samt nokkuð mistækur framan af. Rúnar Ingi Erlingsson sýndi einnig lipur tilþrif.

ÍR-Njarðvík 70-88

Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 16, Nemanja Sovic 12, Sveinbjörn Claessen 11, Kristinn Jónsson 9, Ólafur Þórisson 8, Davíð Fritzson 5, Steinar Arason 5, Gunnlaugur Elsuson 4.

Stig Njarðvíkur: Magnús Þór Gunnarsson 24, Jóhann Árni Ólafsson 21, Kristján Sigurðsson 8, Guðmundur Jónsson 8, Friðrik Stefánsson 8, Páll Kristinsson 7, Rúnar Ingi Erlingsson 6, Hjörtur Hrafn Einarsson 6.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×