Körfubolti

Fannar: Ungu pungarnir eru að spila eins og englar

Fannar Ólafsson átti fínan leik með KR í kvöld, skoraði 17 stig og hirti 11 fráköst
Fannar Ólafsson átti fínan leik með KR í kvöld, skoraði 17 stig og hirti 11 fráköst Mynd/Vilhelm

"Ég held að það hafi verið vörnin sem kláraði þetta hjá okkur í kvöld. Við þurfum að vinna aðeins í sóknarleiknum en höfum í sjálfu sér engar áhyggjur af því," sagði Fannar Ólafsson fyrirliði KR eftir að hans menn lögðu ÍR 82-73 í Iceland Express deildinni í kvöld.

Leikurinn var nokkuð stíft spilaður og bæði lið grimm í vörninni. Þetta gerði það að verkum að lítið fór fyrir fallegum sóknartilþrifum nema ef til vill á stuttum kafla í síðari hálfleiknum.

"Við ætlum að koma vörninni á þann stall að við séum að halda liðum undir 70 stigum og frákasta vel. Við erum að leita meira inn í teiginn en áður og erum fyrir vikið ekki að skora eins mikið fyrir utan. Það er bara október og aðalatriðið er að verja heimavöllinn og vinna okkur hægt og rólega á þann stað sem við viljum vera. Það er líka að gerast," sagði Fannar og hrósaði ungu strákunum í liðinu.

"Strákar eins og Brynjar og Darri og Finnur eru bara ungir pungar sem eru að spila eins og englar og það á eftir að skila sér þegar á líður," sagði fyrirliðinn.

Vísir náði einmitt tali af Finni Magnússyni eftir leikinn en hann er nýkominn í raðir KR-inga eftir nokkur ár í skóla í Bandaríkjunum. Þessi hávaxni leikmaður átti sinn þátt í yfirburðum KR í fráköstunum í kvöld og hirti sjö stykki sjálfur.

"Það er mjög gott að vera kominn heim aftur. Það er miklu meiri stemming hérna. Nú þarf ég ekki að dekka einhverja litla leikmenn sem geta hoppað yfir mig, heldur fæ að henda mönnum til undir körfunni í baráttunni þar," sagði Finnur brosandi.

Stigaskorarar í leik KR og ÍR í kvöld:

Stig KR:  Semaj Inge 19, Fannar Ólafsson 17, Brynjar Björnsson 16, Finnur Magnússon  14, Tommy Johnson 8, Skarphéðinn Ingason 5, Darri Hilmarsson 3

Stig ÍR: Nemanja Sovic 21, Steinar Arason 14, Sveinbjörn Claessen 13, Vilhjálmur Steinarsson 9, Hreggviður Magnússon 8, Gunnlaugur Elsuson 4, Kristinn Jónasson 4.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×