Körfubolti

Benedikt: Þetta verður bara veisla

"Við fórum djúpt ofan í hlutina eftir tapið í síðasta leik og settum okkur það markmið að vinna þennan leik," sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari KR í samtali við Stöð 2 Sport eftir að hans menn unnu sigur á Grindavík í kvöld.

"Við erum með frábært lið og ég vildi bara að þetta kæmi frá hjartanu og að menn hefðu gaman af þessu. Við hættum að spila til þess að tapa ekki og fórum að spila til að vinna. Við erum að fara að fá draumaúrslitaleik tveggja bestu liðanna í deildinni sem eru með frábæran mannskap. Þetta verður bara veisla."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×