Körfubolti

Brynjar og Friðrik valdir bestir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brynjar Þór fær hér verðlaun í dag frá Matthíasi Imsland, forstjóra Iceland Express.
Brynjar Þór fær hér verðlaun í dag frá Matthíasi Imsland, forstjóra Iceland Express. Mynd/Anton

KKÍ tilkynnti eftir hádegið hvaða leikmenn hefðu hlotið verðlaun fyrir seinni hlutann í Iceland Express-deild karla.

KR-ingurinn Brynjar Þór Björnsson var valinn besti leikmaðurinn og Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, var valinn besti þjálfarinn.

Dugnaðarforkurinn er Gunnar Einarsson frá Keflavík og besti dómarinn að þessu sinni er Sigmundur Már Herbertsson.

Bestu áhorfendurnir í seinni hlutanum koma frá Stykkishólmi og styðja Snæfell.

Einnig var valið úrvalslið síðari hlutans og það lítur svona út:

Pavel Ermolinskij, KR

Brynjar Þór Björnsson, KR

Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík

Hlynur Bæringsson, Snæfell

Christopher Smith, Fjölnir








Fleiri fréttir

Sjá meira


×