Handbolti

Ásbjörn: Sýndum úr hverju við erum gerðir

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Ásbjörn Friðriksson.
Ásbjörn Friðriksson. Mynd/Anton
„Við lendum mest fjórum mörkum undir í síðari hálfleik og það er sú staða þar sem við höfum verið að brotna í vetur. Í kvöld sýndum við karakter og sýndum úr hverju við erum gerðir," sagði Ásbjörn Friðriksson leikmaður FH sem skoraði sjö mörk í 29-26 sigri liðsins gegn Akureyri í úrslitum deildarbikar karla.

FH náði góðum kafla þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum þrátt fyrir að vera manni færri og náðu að snúa leiknum sér í vil. „Það virðist vera sem við fáum auka kraft í þessari stöðu og náðum að snúa þessu okkur í hag," segir Ásbjörn sem segir að þetta sé titil sem menn vilja vinna.

„Bæði þessi lið lögðu ríka áherslu á að vinna leikinn. Það er allavega miklu betra að vinna úrslitaleik en að tapa honum," segir Ábjörn sem var ánægður með sína frammistöðu í leiknum. „Ég átti fínan leik þó þeir hafi svolítið verið að verja frá mér. Þetta datt fyrir mig á lokamínútunum og ég vissi að þetta kæmi hjá okkur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×