Körfubolti

Guðjón Skúlason: Ætlum okkur alla leið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Draelon Burns var flottur í liði Keflavíkur í kvöld.
Draelon Burns var flottur í liði Keflavíkur í kvöld.

„Fyrri hálfleikurinn sýndi okkur hvað við áttum ekki að gera og við löguðum það sem betur fer í seinni hálfleik," sagði sigurreifur þjálfari Keflavíkur, Guðjón Skúlason, eftir leikinn gegn KR í kvöld.

„Við fórum vel yfir hlutina í hálfleik og gleymdum bara fyrri hálfleiknum þannig séð. Settum síðan fókusinn á að gera hlutina eins og við ætluðum að gera þá. Það nánast gekk upp allan seinni hálfleikinn sem var frábær af okkar hálfu."

Guðjón segir að þessi sigur gefi liðinu mikið fyrir framhaldið.

„Það er náttúrulega mjög sterkt að vinna toppliðið á útivelli og sérstaklega rétt fyrir úrslitakeppnina. Við þurftum á því að halda að spila góðan leik á útivelli. Þetta er líka sterkt sálfræðilega og sýnir að ef menn spila eins og við ætlum að gera þá spilum við drulluvel," sagði Guðjón.

„Planið er alltaf að fara alla leið. Það verður engin breyting á því núna."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×