Spinningkennarinn Birgir Örn Birgisson heldur því statt og stöðugt fram að hann hafi fundið upp á vinsælu ostasalati sem margir hafa eflaust bragðað í saumaklúbbum og veislum síðustu misseri.
„Ég fullyrði að það var ég sem fann upp á þessu salati. Aðrir hafa hins vegar reynt að eigna sér uppskriftina með misgóðum árangri," segir hann staðfastur.
Birgir segir salatið fyrir alvöru sælkera. „Það er vissulega ekki fitusnautt en þeir sem eru duglegir að mæta í spinning geta leyft sér að borða það á tyllidögum. Aðrir verða að láta bragðvondan duftsjeik duga."
Það kemur ekki á óvart að Birgir Örn er mikill keppnismaður og vill ná árangri í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann hefur verið hugsi yfir fréttum af fólki sem býr við kröpp kjör og segir ljóst að erfiðir tímar séu fram undan hjá mörgum. Hann langaði til að leggja sitt af mörkum og stóð fyrir góðgerða-spinning í World Class allan síðasta mánuð. Birgir hóf söfnunina á hundrað þúsund króna framlagi og jöfnuðu eigendur World Class þá upphæð.
Flutningsfyrirtækið Nesfrakt bætti sömu upphæð við og safnaðist auk þess dágóð upphæð í bauka í spinningtímum hjá Birgi. Upphæðin hljóðar nú upp á í kringum fjögur hundruð þúsund krónur og mun Birgir í samvinnu við Sr. Guðrún Karlsdóttur, sóknarprest í Grafarvogskirkju, koma fénu í hendurnar á fátækum barnafjölskyldum á Íslandi sem hver um sig fær 30-50 þúsund krónur fyrir jólin.

1 piparostur
1 mexíkóostur
1 mjúkur hvítlauksostur
1 paprika (eftir smekk)
1 dós sýrður rjómi
1dl majones
vínber (eftir smekk)
púrrulaukur (valkvætt)
2 pakkar af Tuc Orginal kexi
Skerið ostana niður í litla bita og blandið þeim saman við rjómann og majónesið. Skerið paprikuna, vínberin og púrrulaukinn niður og hrærið vel saman. Best er að gera salatið daginn fyrir neyslu.