Pétur Ingvarsson: Snæfell græðir á því ef þetta fer út í slagsmál Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2010 11:30 Pétur Ingvarsson, þjálfara Hauka. Mynd/Valli
KR og Snæfell leika í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta. Vísir fékk Pétur Ingvarsson, þjálfara Hauka til þess að spá í leik kvöldsins sem hefst klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostaskjóli og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. „Ég held að KR vinni þetta. Ég held að KR-ingar séu með betri einstaklinga innan liðsins þegar þeir koma allir tilbúnir í þetta. Ef þeir eru allir tilbúnir að berjast í þessu saman þá vinna þeir þetta," segir Pétur Ingvarsson, „Það verður jafnt en ég held að KR-ingar vinni þetta nokkuð sannfærandi engu að síður. Hvort sem þeir vinna þetta með tveggja stiga tölu er ekki aðalmálið en þeir eiga eftir að vera með forustuna og vinna þetta örugglega," segir Pétur. „KR-ingar eiga það mikið inni hjá Brynjari og Tommy Johnson og þeir geta farið í gang. Mér finnst eins og Snæfellingarnir séu að reyna að espa þá tvo upp í slagsmál. Þeir eru ágætis slagsmálahundar en þeir eru miklu betri körfuboltamenn og þurfa að einbeita sér miklu meira að því að spila körfubolta," segir Pétur. Brynjar hefur „bara" skorað 9,8 stig að meðaltali í einvígi og aðeins 26 prósent skota hans (12 af 47) hafa ratað rétta leið í körfuna. „Ef Brynjar er kominn í slagsmálagírinn þá er hann alveg til í það en þá verður hann bara ömurlegur körfuboltamaður í staðinn. Það sama má segja um Tommy," segir Pétur en Tommy Johnson er með 8,8 stig að meðaltali og 24 prósent skotnýtingu (11 af 46) í einvíginu „Ef Snæfellingarnir ná að fara út í einhvern Keflavíkurleik, eins og Keflavíkur-Njarðvíkur leikurinn var í gær (fyrrakvöld), þá getur Snæfell alveg unnið þetta. Snæfell græðir á því ef þetta fer út í einhver slagsmál. Ef þetta verður fallegur körfubolti innan gæsalappa þá held ég að KR-ingarnir eigi eftir að vinna þetta," segir Pétur að lokum.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Enski boltinn Eðla rölti inn á brautina á æfingu Formúla 1 Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira