Endurskoðun tekin fyrir ári of seint 16. apríl 2010 06:00 Gamlir Grikkir Umfjöllun um aðstoð AGS við Grikki vegna efnahagsþrenginga þar í landi var fyrirferðarmikil á kynningarfundi sjóðsins í gær. Fréttablaðið/AP
Ekki kemur í ljós fyrr en að afloknum fundi stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í dag hvort náðst hefur að tryggja fjármögnun á framgangi efnahagsáætlunar Íslands og AGS. Þetta kom fram á reglubundnum upplýsingafundi sjóðsins í gær. Á fundinum sagði Caroline Atkinson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs AGS, hins vegar að úr ákvörðun framkvæmdastjórnar og starfsliðs AGS um að leggja málið fyrir stjórnina megi lesa trú þeirra á að málið sé fundartækt og líklegt til framgöngu. AGS lýsti því yfir fyrir helgi að í dag yrði tekin fyrir á stjórnarfundi önnur endurskoðun efnahagsáætlunarinnar. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir að þessi endurskoðun ætti sér stað í maílok 2009, þannig að nærri ársdráttur hefur orðið á áætluninni. Töfin skýrist á því að á meðan deilu Íslendinga við Breta og Hollendinga um lyktir Icesave-samkomulags er ólokið hefur ekki verið hægt að tryggja fjármögnun áætlunarinnar. Heimildir Fréttablaðsins herma að ákvörðun sjóðsins um að taka málið fyrir ráðist af því að stjórnvöld hafi í viljayfirlýsingu stefnt að því að ljúka samningum um Icesave sem fyrst, að því gefnu að viðunandi niðurstaða fengist. Verði endurskoðunin samþykkt verða afgreidd hingað lán í tengslum við efnahagsáætlunina frá AGS og Póllandi. - óká
Stj.mál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað Innlent Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Veður Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Fangi lést á Litla-Hrauni Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Súðavíkurhlíð líka lokað og fjöldahjálparstöðvar reyndust óþarfar Jón muni ekki koma nálægt meðferð „hvalamálsins“ Stór aurskriða féll við Eyrarhlíð Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað Móðirin ætlar að áfrýja „Sænska ástandið“ orðið að norrænu Segist ekki skulda dómsmálaráðherra skýringar Viðhorf til kvenna í leiðtogastörfum versnar Bein útsending: Kosningafundur Sambands íslenskra sveitarfélaga Kynna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar Tvö vilja í Endurupptökudóm Kvarta til umboðsmanns Alþingis vegna blóðmerahalds Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Ferðaðist frá Flateyri til Ísafjarðar til að fylla á vatnsflöskur Skriðuföll á Vestfjörðum og lokað fyrir vatnið á Flateyri Neysluvatnið í Bolungarvík drullugt og í ólagi Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Loka fyrir vatnið á Flateyri eftir skriðu Opna sundlaugina í Grindavík á ný Þeim fækkar sem lesa og skrifa skilaboð við akstur Varað við vatnavöxtum og skriðuföllum: Vegir lokuðust á Vestfjörðum Sjá meira