Hércules vann Barcelona á Camp Nou í fyrsta leik Mascherano Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. september 2010 18:00 Nelson Haedo Valdez fagnar fyrra marki sínu. Mynd/AP
Nýliðar Hércules komu gríðarlega á óvart í kvöld með því að vinna 2-0 sigur á Spánarmeisturum Barcelona á Nývangi í spænsku úrvalsdeildinni. Nelson Haedo Valdez skoraði bæði mörkin í sitthvorum hálfleiknum. Barcelona komst lítið áleiðis á móti skipulögðu liði Hércules sem vann þarna einn óvæntasta sigurinn í spænska boltanum í langan tíma. Javier Mascherano spilaði þarna sinn fyrsta leik fyrir Barcelona en honum var skipt útaf í hálfeik og tók Xavi stöðu hans. Það breytti þó litlu því Barcelona-liðið var nánast óþekkjanlegt í þessum leik. Nelson Haedo Valdez, 26 ára landsliðsmaður Paragvæ, kom Hércules í 0-1 á 27. mínútu og skoraði síðan annað markið sitt á 59.mínútu leiksins. Hann er að spila sitt fyrsta tímabil á Spáni eftir að hafa komið frá þýska liðinu Dortmund í sumar. Í fyrra markinu nýtti hann sér klaufagang í vörn Barca en það seinna kom eftir flotta sókn. Barcelona var taplaust á síðasta tímabili á heimavelli sínum og vann þá 18 af 19 heimaleikjum sínum. Þetta tap gefur hinsvegar Real Madrid tækifæri á því að komast upp fyrir erkifjendur sína þegar þeir mæta Osasuna á Bernebau á eftir. Real hafði aðeins náð jafntefli í fyrstu umferðinni.
Spænski boltinn Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Tapaði titlinum í lokabeygjunni Sport Fleiri fréttir Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar Sjá meira