Körfubolti

Sigurður: Andleysi okkar kom mér á óvart

Elvar Geir Magnússon í Garðabæ skrifar
Sigurður Ingimundarson.
Sigurður Ingimundarson.

Stjarnan var með forystuna nær allan leiktímann þegar liðið vann tíu stiga sigur á Njarðvík í Iceland Express-deildinni. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkur, var skiljanlega ekki kátur eftir leik.

„Við vorum ráðvilltir enda að fá nýja menn inn en það kom mér á óvart hversu andlausir við vorum," sagði Sigurður.

Jóhann Árni Ólafsson var ekki með Njarðvík en hann meiddist gegn ÍR og gat heldur ekki leikið gegn Snæfelli fyrir rúmri viku. Sigurður segir að enn sé ekki komið í ljós hvenær hann verði klár í slaginn.

Stjarnan og Njarðvík mætast að nýju í bikarnum bráðlega og verður sá leikur einnig í Garðabænum. „Við eigum leik á fimmtudag og klárum það verkefni fyrst áður en við skoðum þetta. En það er rétt að við mætum hingað aftur og þá verður annað uppi á teningnum," sagði Sigurður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×