Íslenski boltinn

Rúnar: Ég nota ekki svona stóra myndavél

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Norska blaðið Aftenbladet gerir því skónna á vefsíðu sinni í dag að Rúnar Kristinsson hafi tekið upp hluta af æfingu norska landsliðsins í dag.

Rúnar var í einu sjónvarpshólfanna þar sem myndavél hafði verið komið fyrir.

"Myndaði ég æfinguna? Neinei, þetta er stór myndavél sem á að nota í leiknum á morgun. Ég nota ekki svona stóra myndavél," sagði Rúnar léttur.

Rúnar aðstoðar Ólaf Jóhannesson landsliðsþjálfara við að fylgjast með andstæðingum Íslands.

Aftenbladet hefur eftir forráðamönnum norska knattspyrnusambandsins að það muni ekki eyða púðri í þessar vangaveltur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×