Íslenski boltinn

Blikar æfðu í ógeðslegu veðri í Skotlandi - myndir

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Ólafur Kristjánsson í rigningunni í gær.
Ólafur Kristjánsson í rigningunni í gær. Heimasíða Motherwell.
Það er ekki glæsileg veðurspá fyrir kvöldið í Skotlandi. Þar fer ekki bara opna breska meistaramótið í golfi fram heldur eru Blikar þar í heimsókn hjá Motherwell.

Blikar æfðu á Fir Park í gær í veðri sem er bara lýst með orðinu "ógeðslegt."

Á heimasíðu Motherwell má sjá nákvæmlega fjórar myndir frá æfingunni, hérna.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.45 og þá er spáð rigningu í Moterwell.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×