Körfubolti

Senda Snæfellingar meistarana í sumarfrí?

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel

Fjórði leikur Snæfells og KR í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta verður í kvöld í Stykkishólmi. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Snæfellingar leiða einvígið 2-1 eftir sigur í DHL-höllinni á laugardag og geta þeir því tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í kvöld. Íslandsmeistarar KR munu þó væntanlega ekkert gefa eftir enda ekki til í að fara strax í sumarfrí.

Takist KR að vinna í kvöld tryggir liðið sér oddaleik á heimavelli sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×