Körfubolti

Jón Arnór spáir því að KR vinni Keflavík í oddaleik um titilinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson varð Íslandsmeistari með KR í fyrra.
Jón Arnór Stefánsson varð Íslandsmeistari með KR í fyrra. Mynd/Vilhelm

Körfuknattleiksambandið fékk til sína nokkra þjóðþekkta aðila sem hafa áhuga á körfubolta til í að spá fyrir því hvernig úrslitakeppni Iceland Express deildar karla kemur til með að spilast en átta liða úrslitin halda áfram í kvöld.

Flestir spá því að KR og Keflavík muni mætast í lokaúrslitunum eða fimm af tólf og átta af tólf spá því að KR vinni Íslandsmeistaratitilinn.

Jón Arnór Stefánsson, leikmaður CB Granada á Spáni, er einn af spámönnum KKÍ og hann spáir því að KR vinni Keflavík í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Alls spá átta því að titilinn muni vinnast í fimmta leik í lokaúrslitunum.

Það má finna spá allra í frétt á KKÍ-síðunni eða með því að smella hér en þetta er spákeppni þar sem gefin verða stig fyrir rétt lið áfram. Spámennirnir fá einnig verða aukastig ef spáð er fyrir mig um réttan leikjafjölda í hverju einvígi.

Samantekt á spánni (12 atkvæði í boði)

Hverjir komast í undanúrslitin?

KR 12 atkvæði

Keflavík 12 atkvæði

Njarðvík 8 atkvæði

Grindavík 7 atkvæði

Snæfell 5 atkvæði

Stjarnan 4 atkvæði

Hverjir mætast í lokaúrslitunum?

KR-Keflavík 5 atkvæði

KR-Grindavík 3 atkvæði

KR-Njarðvík 2 atkvæði

Grindavík-Njarðvík 1 atkvæði

Keflavík-Njarðvík 1 atkvæði

Hverjir verða Íslandsmeistarar?

KR 8 atkvæði

Keflavík 2 atkvæði

Njarðvík 2 atkvæði




Fleiri fréttir

Sjá meira


×