Keflvíkingar hafa aldrei tapað oddaleik um titilinn á heimavelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. apríl 2010 14:45 Keflvíkingarfagna níunda Íslandsmeistaratitli sínum fyrir tveimur árum.
Keflvíkingar eru gestgjafar í kvöld í fjórða sinn í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn þegar Keflavík og Snæfell spila hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta. Leikurinn hefst klukkan 19.15 í Toyota-höllinni í Keflavík og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Keflvíkingar hafa aldrei tapað oddaleik um titilinn á heimavelli, þeir unnu 17 stiga sigur sigur á KR-ingum 1989, unnu Valsmenn með 9 stigum þremur árum síðar og unnu síðan nágranna sína í Njarðvík með sex stigum í síðasta oddaleik sínum um titilinn sem fram í Keflavík 22. apríl 1999. Guðjón Skúlason og Axel Nikulásson skoruðu báðir 19 stig í 89-72 sigri Keflavíkur á KR 22. mars 1989 og Nökkvi Már Jónsson kom skammt á eftir með 16 stig. Keflavík var komið 15 stigum yfir í hálfleik, 45-30, og vann öruggan sigur. Jónatan Bow skoraði 23 stig, Nökkvi Már Jónsson var með 19 stig og Jón Kr. Gíslason skoraði 16 stig þegar Keflavík vann 77-68 sigur á Val 11. apríl 1992. Keflavík vann þá tvo síðustu leiki sína í úrslitaeinvíginu. Falur Harðarson skoraði 29 stig og gaf 5 stoðsendingar í 88-82 sigri Keflavík á Njarðvík 22. apríl. Damon Johnson var með 22 stig, 16 fráköst og 5 stoðsendingar í leiknum og Gunnar Einarsson skoraði 13 stig. Keflvíkingar hafa alls unnið Íslandsmeistaratitilinn níu sinnum frá upphafi og í sjö af þessum níu skiptum hefur liðið tryggt sér titilinn á heimavelli sínum á Sunnubrautinni. Oddaleikir um Íslandsmeistaratitilinn í Keflavík 1989: Keflavík 89-72 KR 1992: Keflavík 77-68 Valur 1999: Keflavík 88-82 Njarðvík 2010: Keflavík ??-?? SnæfellHvar hafa Keflvíkingar orðið Íslandsmeistarar: 1989 Keflavík (í Keflavík 22. mars 1989) 1992 Keflavík (í Keflavík 11. apríl 1992) 1993 Keflavík (í Keflavík 31. mars 1993) 1997 Keflavík ( í Keflavík 6. apríl 1997) 1999 Keflavík (í Keflavík 22. apríl 1999) 2003 Keflavík (í Grindavík 10. apríl 2003) 2004 Keflavík (í Keflavík 10. apríl 2004) 2005 Keflavík (í Stykkishólmi 9. apríl 2005) 2008 Keflavík (í Keflavík 24. apríl 2008)
Dominos-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn Enski boltinn Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni Íslenski boltinn „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Handbolti „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Handbolti Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fótbolti Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tap í fyrsta leik Alba Berlin Daníel tekur við KR Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Sjá meira