Körfubolti

Stólarnir brotnuðu ekki gegn Keflavík

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Tindastóll gerði sér lítið fyrir í kvöld og tryggði sér oddaleik gegn Keflavík í átta liða úrslitum Iceland Express-deildar karla.

Tindastóll vann þá annan leik liðanna, 94-91. Liðin hafa því sitt hvorn vinninginn og þurfa að mætast í oddaleik á fimmtudag.

Keflavík virtist vera með öruggan sigur í höndunum og leiddi nánast allan leikinn. Tindastóll átti aftur á móti magnaða endurkomu og tryggði sér frábæran sigur.

Tindastóll-Keflavík  94-91

Stig Tindastóls: Friðrik Hreinsson 25, Svavar Birgisson 17, Cedric Isom 17, Donatas Visockis 17, Axel Kárason 7, Helgi Viggósson 5, Helgi Margeirsson 4, Sigmar Björnsson 2.

Stig Keflavíkur: Draelon Burns 25, Hörður Axel Vilhjálmsson 25, Sigurður Þorsteinsson 10, Uruele Igbavboa 9, Gunnar Einarsson 7, Jón Hafsteinsson 7, Sverrir Sverrisson 6, Þröstur Jóhannsson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×