Körfubolti

IE-deild karla: Snæfell með góðan sigur gegn ÍR

Ómar Þorgeirsson skrifar
Sigurður Þorvaldsson.
Sigurður Þorvaldsson. Mynd/Stefán

Einn leikur fór fram í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld þar sem Snæfell vann 96-86 sigur gegn ÍR í Hólminum en staðan var 48-42 heimamönnum í vil í hálfleik.

Snæfell var að spila án Hlyns Bæringssonar og þjálfarinn Ingi Þór Steinþórsson var hæst ánægður með sigur sinna manna.

„Ég var bara virkilega ánægður með þennan sigur þar sem það er alltaf hættulegt að spila fyrsta leik í deildinni eftir bikarúrslitaleik. Auk þess sem ÍR er náttúrulega með hörkugott lið. Þetta var því mjög fínn leikur hjá okkur," sagði Ingi Þór.

Sigurður Þorvaldsson átti stórleik fyrir Snæfell og skoraði 25 stig og tók 18 fráköst en Sean Burton kom næstur með 23 stig.

Hjá ÍR var Robert Jarvis stigahæstur með 24 stig. Snæfell komst með sigrinum upp að hlið Grindavíkur, Stjörnunnar og Njarðvíkur með 26 stig, fjórum stigum á eftir toppliði KR.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×