Formúla 1

Tvöfalt hjá Ferrari - Felipe Massa hleypti Fernando Alonso fram úr

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fernando Alonso.
Fernando Alonso. Mynd/AFP
Fernando Alonso og Felipe Massa tryggðu Ferrari tvöfaldan sigur í þýska kappakstrinum í formúlu eitt sem fram fór á Hockenheim-brautinni í dag. Lewis Hamilton er með fjórtán stiga forskot í keppni ökumanna eftir að hafa endaði í fjórða sætinu í ár.

Felipe Massa keyrði frábærlega, byrjaði strax á því að fara úr þriðja sæti og upp fyrir þá Fernando Alonso og Sebastian Vettel, Vettel var á ráspólnum en datt strax niður í þriðja sætið þar sem hann kláraði keppni.

Það sem gerðist á 49. hringnum er mjög umdeilt þegar Felipe Massa fékk þau skilaboð í eyrað að Fernando Alonso væri fljótari en hann. Massa virtist í kjölfarið hleypa Alonso fram úr sér og í kjölfarið fékk hann hrós frá starfsmönnum Ferrari.

Lewis Hamilton endaði í 4. sæti hefur fjórtán stigum meira en Jenson Button var líka í næsta sæti á eftir í kappakstrinum í dag. Michael Schumacher endaði níundí í sínum fyrsta kappakstri í heimalandi sínum eftir að hann hóf keppni á nýjan leik.

Lokaröð manna í í þýska kappakstrinum:

1. Alonso, Ferrari

2. Massa, Ferrari

3. S Vettel, Red Bull

4. Hamilton, McLaren

5. Button, McLaren

6. Webber, Red Bull

7. Kubica, Renault

8. Rosberg, Mercedes

9. Schumacher, Mercedes

10. Petrov, Renault

Staða í keppni ökumanna:

1. Hamilton, McLaren 157

2. Button, McLaren 143

3. Webber, Red Bull 136

4. Vettel, Red Bull 136

5. Alonso, Ferrari 123

6. Rosberg,, Mercedes 94

7. Kubica, Renault 89

8. Massa, Ferrari 85

9. Schumacher, Mercedes 38

10. Sutil, Force India 35






Fleiri fréttir

Sjá meira


×