Formúla 1

Nýja brautin í Madrid toppi Móna­kó

Formúla 1 keppir á glænýrri kappakstursbraut í Madríd um helgina þegar spænski kappaksturinn fer fram. George Russell, ökumaður Mercedes, var hraðastur á fyrstu æfingum og segir brautina vera erfiðari heldur en brautina í Mónakó.

Formúla 1

Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti

Formúla 1 snýr aftur til Madridar eftir 45 ára fjarveru og mun kappaksturinn fara fram á glænýrri kappakstursbraut. Williams ætlar að fagna því með vitnun í gamlan bíl þeirra en sá bíll var með umdeilanlegan styrktaraðila.

Formúla 1

Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg

Charles Leclerc, ökuþór Formúlu 1 liðs Ferrari, segist laskaður á bæði líkama og sál eftir erfiða keppnishelgi á heimavelli Ferrari þar sem að Leclerc missti stjórn á bíl sínum á miklum hraða og skall á öryggisvegg. 

Formúla 1

Enn ein von­brigðin fyrir Hadjar

Vonbrigðin halda áfram fyrir Red Bull-ökumanninn Isack Hadjar en hann mun missa af spænska kappakstrinum sem fer fram um helgina. Hann hefur ekki enn jafnað sig í úlnliðnum þar sem hann meiddist í ágúst.

Formúla 1

Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu

Kimi Antonelli, forystusauður stigakeppni ökuþóra, mun ræsa aftastur á heimavelli í Formúlu 1-keppni helgarinnar eftir að hafa fengið á sig refsingu. Refsinguna fær hann eftir að skipta þurfti um vélarbúnað í bíl hans fyrir komandi keppnishelgi á Monza.

Formúla 1

Hadjar frá í aðra keppni

Isack Hadjar verður ekki með Red Bull um helgina í ítalska kappakstrinum en hann er ekki enn búinn að jafna sig á meiðslum sem hann varð fyrir í sumarfríinu í Formúlu 1. Liam Lawson verður þá áfram hjá Red Bull um helgina og Yuki Tsunoda fær að spreyta sig í annarri keppni.

Formúla 1

Norris náði öðrum sigri

Lando Norris hjá McLaren stóð uppi sem sigurvegari í Formúlu 1 kappakstrinum í Hollandi. Hann hefur nú unnið tvær keppnir í röð og minnkað forystu Kimi Antonelli hjá Mercedes í efsta sæti heimslistans.

Formúla 1

Norris náði ráspólnum aftur

Ríkjandi meistarinn Lando Norris hjá McLaren er ekki tilbúinn að játa sig sigraðan í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og tryggði sér fremstu stöðu í Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í Hollandi á morgun.

Formúla 1