„Rosalegt vesen“ að taka 14. apríl 2010 05:00 Seðlabanki Íslands Kjallarinn er sagður fullur af vörubrettum með handhafaskuldabréfum.
Rannsóknarnefnd Alþingis segir illskiljanlegt að Seðlabankinn hafi ekki tekið traustari veð vegna lána til viðskiptabankanna. Það sé ekki málefnaleg ástæða fyrir því að gera það ekki að „rosalega mikið vesen" hafi verið að taka skuldabréf á pappír. „Það er bara svo rosalega mikið vesen að taka við einhverju sem er fýsískt skuldabréf," sagði Sturla Pálsson. framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabankans, þegar hann var spurður í skýrslutöku hjá rannsóknarnefnd Alþingis, af hverju bankinn tók ekki traustari veð fyrir lánum sínum til viðskiptabankanna en veð í óvörðum skuldabréfum. Tap Seðlabankans við hrun íslenska bankakerfisins nam um 300 milljörðum króna, sem falla á skattgreiðendur. „Veðlán jukust verulega hjá öllum bönkunum þremur eftir að lausafjárkreppan hófst haustið 2007. Þróuðust mál þannig að veðlán jukust úr því að vera um tveir milljarðar evra, sem mestmegnis voru frá Seðlabanka Íslands, yfir í það að vera yfir níu milljarðar evra við fall bankanna," segir í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Nærri helmingur veðlánanna var frá Seðlabanka Evrópu. Í nóvember 2007 var orðið ljóst að íslensku bankarnir stunduðu í ríkum mæli að gefa út óvarin skuldabréf sem voru seld öðrum fjármálafyrirtækjum, einkum Icebank, sem síðan notuðu skuldabréfin sem veð fyrir lánum frá Seðlabankanum. „Með slíkum viðskiptum fóru fjármálafyrirtækin í raun í kringum þá reglu Seðlabankans að lán séu ekki veitt gegn veði í eigin skuldabréfum fjármálafyrirtækis. Þrátt fyrir þessa vitneskju spornaði Seðlabanki Íslands ekki við slíkum veðsetningum og reyndi ekki að afla sér traustari veða," segir í rannsóknarskýrslunni. Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, sagði rannsóknarnefndinni að ekki hefði verið hægt að loka á þessi veð þar sem fréttir um slíkt hefðu orðið bönkunum að falli. Rannsóknarnefndin segir hins vegar að slíkt hefði verið hægt að gera án þess að það kæmist í hámæli. Bæði Seðlabanki Evrópu og Seðlabanki Lúxemborgar hefðu tvívegis gert breytingar á veðkröfum gagnvart íslensku bönkunum. Það hefði Seðlabanki Íslands vitað en almenningur ekki. Íslensku bankarnir léku sama leikinn erlendis og hér heima með skipti á verðbréfum gagnvart Seðlabanka Evrópu en voru fljótt stöðvaðir. Engu síður héldu þeir áfram og náðu að auka veðlánatöku sína ytra um 4,5 milljarða evra í gegnum dótturfélög. Rannsóknarnefndin segir athyglisvert að svo virðist sem Seðlabanki Íslands hafi ekki fylgst með stöðu íslensku bankanna í Seðlabanka Evrópu þótt gefin hafi verið viðvörun í apríl 2008 um endurtekningu slíkra viðskipta. Rannsóknarnefndin segist ekki fallast á það með Davíð Oddssyni seðlabankastjóra að viðskiptabankarnir hafi ekki haft aðrar eignir en óvarin skuldabréf til að leggja að veði. „Var því illskiljanlegt að þess skyldi ekki freistað að taka önnur veð í ljósi þess viðhorfs sem uppi var um stöðu bankanna innan og af hálfu bankastjórnar Seðlabankans allt frá því á fyrri hluta árs 2008," segir í skýrslunni. „Þá hefði ég allt eins getað farið að loka bönkunum," svaraði Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabankans, spurður að því hvort ekki hefði komið til greina að taka önnur veð frá bönkunum. „Kjallarinn í Seðlabankanum er fullur af handhafaskuldabréfum," bætti Sturla og útskýrði að betra hefði verið að taka við veðum sem hægt var að taka við rafrænt. Þessa skýringu telur rannsóknarnefndin ekki duga. „Ekki verður á það fallist að það geti talist málefnalegar ástæður þess að ekki var leitað eftir haldbetri veðum að það hafi verið „rosalega mikið vesen að taka við einhverju sem er fýsískt skuldabréf" enda var það beinlínis hlutverk stofnunarinnar að huga að veðtryggingum sínum á hendur fjármálastofnunum. Tekið er fram að Seðlabankinn hafi loks um miðjan júlí 2008 sent bönkunum bréf um að engin ný óvarin skuldabréf yrðu samþykkt sem veð nema að undangenginni sérstakri athugun. Rannsóknarnefndin segir bankann þó ekki hafa fylgt þessari stefnubreytingu „að neinu ráði". Í andmælabréfi sínu til rannsóknarnefndarinnar segir Davíð Oddsson „hugleiðingu" hennar vera „eftiráspeki". Ekki sé tekið neitt mið af því hvaða aðstæður voru uppi síðasta eitt og hálfa árið fyrir hrun bankanna. „Ef Seðlabanki Íslands hefði einn banka þrengt kröfur sínar um veð við þessar aðstæður til þess að hann sjálfur tæki litla eða enga áhættu af tilraunum til að fleyta eigin bankakerfi í gegnum brimskaflana þá hefði með réttu mátt áfellast bankastjórnina og velta fyrir sér eftir á hvort hann hefði átt þátt í að flýta falli íslenska bankakerfisins," segir Davíð. gar@frettabladid.is
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Svandís stígur til hliðar Innlent Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Innlent Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Erlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Innlent Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Innlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Fleiri fréttir Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Flensan á flugi og Sundlaugarmenningunni fagnað í Vesturbæjarlauginni Játaði en áfrýjaði samt og krafðist sýknu Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Vilja takmarka fjölda barna sem getin eru með sama sæði Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Sjá meira