Körfubolti

Umfjöllun: Keflavík eyðilagði teitið hjá KR

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það var hart barist í DHL-höllinni í kvöld.
Það var hart barist í DHL-höllinni í kvöld. Mynd/Vilhelm

Keflvíkingar sýndu frábæran körfubolta í síðari hálfleik gegn KR og lönduðu glæsilegum sigri, 92-100. KR hefði orðið deildarmeistari með sigri en Keflvíkingar höfðu greinilega engan áhuga á að horfa á KR fagna í leikslok og ákváðu því að eyðilegga teitið.

KR var skrefi á undan í fyrsta leikhluta en hreinlega rúllaði yfir gestina í öðum leikhluta. Þá fóru Pavel Ermolinskij og Brynjar Þór Björnsson á kostum á meðan það stóð ekki steinn yfir steini í leik Keflvíkinga. Ef ekki hefði verið fyrir Uruele Igbavbova þá hefði munurinn verið meiri en 17 stig í leikhléi. 52-35 í hálfleik.

KR-ingar voru rænulausir og ótrúlega ragir í upphafi síðari hálfleiks. Baráttuglaðir Keflvíkingar fóru að keyra í andlitið á þeim og spila hörkuvörn. KR var ekki til í þann slag. Smám saman minnkaði forskotið og Keflavík komst yfir áður en leikhlutinn var allur og leiddi eftir hann, 68-73.

KR reyndi að spyrna við fótum í lokaleikhlutanum en það var ekki nóg. Keflvíkingar gáfu ekki eftir og lönduðu sanngjörnum sigri.

Drealon Burns, sem gárungarnir eru farnir að kalla Mr. Burns, og Uruela Igbavbova voru magnaðir í Keflavíkurliðinu. Hörður Axel átti síðan stórbrotin síðari hálfleik eftir að hafa verið meðvitundarlaus í fyrri hálfleik. Sigurður Þorsteinsson var drjúgur og Gunnar Einarsson setti tóninn með mögnuðum körfum í upphafi síðari hálfleiks.

Pavel og Brynjar Þór voru magnaðir í fyrri hálfleik en náðu ekki að fylgja því eftir og gerðu sig seka um of mörg mistök í þeim síðari. Tommy Johnson fékk að spila allt of mikið og tók hvert glórulausa skotið á fætur öðru. Hnefaleikakappinn Tommy "Boom Boom" Johnson hefði nýst liðinu betur í þessum leik.

Nýi Kaninn, Morgan Lewis, hefði svo allt eins getað verið heima hjá sér að lesa Morgan Kane því hann gat ekkert. Átti eina frábæra viðstöðulausa troðslu en það var allt og sumt.

KR-Keflavík 92-100

Stig KR: Brynjar Þór Björnsson 27, Tommy Johnson 18, Pavel Ermolinskij 17 (10 frák., 10 stoðs.), Fannar Ólafsson 11, Morgan Lewis 8, Darri Hilmarsson 6, Jón Orri Kristjánsson 5.

Stig Keflavíkur: Draelon Burns 29, Uruele Igbavbova 25, Hörður Axel Vilhjálmsson 20, Sigurður Þorsteinsson 14, Gunnar Einarsson 9, Þröstur Leó Jóhannsson 3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×