Defoe fór í ökklaaðgerð og verður frá í þrjá mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. september 2010 12:00 Harry Redknapp verður án Jermain Defoe þangað til í desember. Mynd/AP
Tottenham er nú búið að fá slæmar fréttir af framherja sínum Jermain Defoe þrjá daga í röð. Hann meiddist í leik með enska landsliðinu á þriðjudag, á miðvikudaginn var talið að hann yrði frá í sex vikur en í gær kom í ljós að hann þurfti að fara í aðgerð og verður frá í þrjá mánuði. Jermain Defoe meiddist á ökkla í 3-1 sigri Englendinga á Sviss og Harry Redknapp, stjóri Tottenham, vonaðist til að hann yrði klár innan sex vikna. Við nánari skoðun þurfti hann hinsvegar á aðgerð að halda til þess að laga liðbönd á hægri ökkla. Jermain Defoe gæti náð að spila á móti Chelsea 11. desember en þá væri hann búinn að missa af þrettán leikjum í ensku úrvalsdeildinni og allri riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Þetta er mikið áfall fyrir bæði Tottenham og Jermain Defoe en framherjinn snöggi var búinn að vera sjóðheitur að undanförnu og skoraði meðal annars þrennu í stórsigri Englendinga á Ungverjum fyrir viku. Tottenham mun því treysta á Peter Crouch, Roman Pavlyuchenko og Robbie Keane í Meistaradeildinni á meðan enska landsliðið mun nota Peter Crouch, Bobby Zamora eða Darren Bent.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjá meira