Íslenski boltinn

KR-Glentoran í kvöld í beinni í KR-útvarpinu

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Úr fyrri leik liðanna.
Úr fyrri leik liðanna. Fréttablaðið/Anton
KR leikur í kvöld síðari leik sinn gegn Glentoran í forkeppni Evrópudeildarinnar. Leikurinn fer fram í Belfast og verður KR-útvarpið með beina útvarpslýsingu frá leiknum.

Leikurinn hefst klukkan 18.30 en útsending KR-útvarpsins hefst klukkutíma fyrr.

jarni Felixson og Þröstur Emilsson verða í KR-heimilinu og Ólafur Brynjar Halldórsson og Kristinn Kjærnested á The Oval vellinum í Belfast.

KR vann fyrri leikinn 3-0 í Frostaskjólinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×