Gullmedalía George Best seldist á tæpar 28 milljónir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2010 23:00 Verðlaunapeningurinn sem seldist á tæpar 28 milljónir. Mynd/AFP
Knattspyrnuáhugamaður eignaðist í dag eftirsóttasta gullverðlaunapening Manchester United mannsins George Best þegar hann bauð 156 þúsund pund í gullmedalíuna á uppboði í Englandi. Kaupandinn var því tilbúinn að eyða tæpum 28 milljónum íslenskra króna í þennan sögulega verðlaunapening sem Best fékk fyrir að vinna Evrópukeppni meistaraliða með Manchester United fyrir 42 árum. George Best fór á kostum með Manchester United í 4-1 sigri á Benfica í úrslitaleiknum 29. maí 1968 en leikurinn var framlengdur og fór fram á Wembley í London. Best kom United í 2-1 í upphafi framlengarinnar með því að sóla sig í gegnum vörn Portúgalana og lagði með þessu marki sínu grunninn að sigrinum. Uppboðshaldarinn Bonhams seldi allar þrettán verðlaunapeninga frá ferli George Best á 200 þúsund pund sem eru um 35,5 milljónir íslenskra króna. Gullverðlaunin frá því í úrslitaleiknum í Evrópukeppni meistaraliða 1968 var metin á 90 til 120 þúsund pund og fékkst því mun meira fyrir hana er spáð var fyrirfram.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira