Innlent

Klúðruðu milljarðakröfu gegn Stím-feðgum - málið ekki dómtækt

Valur Grettisson skrifar
Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur.

Mál Landsbankans gegn eignarhaldsfélögum í eigu feðganna Flosa Valgeirs Jakobssonar og sonar hans, Jakobs Valgeirs Flosasonar, var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem málið þótti ekki dómtækt vegna óljósrar stefnu.

Bankinn krafðist upprunalega rúmlega 10 milljónir svissneskra franka af félögunum, sem reiknast um 1,2 milljarður á núverandi gengi.

Um er að ræða einkamál sem bankinn höfðaði gegn félagi sem heitir JV ehf., en hét áður Jakob Valgeir ehf., og er í Bolungarvík. Þá var Ofjarli ehf., sem er í eigu Flosa, og eignarhaldsfélaginu Gafli einnig stefnt í október 2009.

Einkamálið var höfðað vegna lána sem útgerð þeirra feðga í Bolungarvík tók í erlendri mynt, það er að segja í svissneskum frönkum. Lánið tvöfaldaðist eftir að krónan féll og á þeim forsendum mótmæltu feðgarnir kröfu Landsbankans.

Félögin Ofjarl og Gafl, gengust í ábyrgð fyrir lánið.

Dómur féll í málinu í dag og var málinu vísað frá vegna þess að það þótti ekki dómtækt og var „óhjákvæmilegt að vísa málinu sjálfkrafa frá dómi" eins og segir orðrétt í dóminum.

Ástæðan fyrir því að mál Landsbankans var svona óljóst var vegna þess að bankinn breytti kröfugerð sinni í miðjum málaferlum. Lögmaður feðganna mótmælti nýju kröfugerðinni og taldi hana koma of seint fram.

Þá segir orðrétt í úrskurðinum:

„Í hinni nýju kröfugerð stefnanda eru gerðar kröfur á hendur „stefnda" án þess að getið sé við hvern af hinum þremur stefndu í málinu sé átt við. Ekki er gerð krafa um greiðslu in solidum eins og gert var í stefnu enda á það vart við þar sem stefnda er getið í eintölu í nýju kröfugerðinni. Af hálfu stefnanda hefur ekki komið fram að hann óski eftir að falla frá málinu á hendur einhverjum stefndu. Þvert á móti ber yfirskrift skjals er inniheldur hina breyttu kröfugerð með sér að málið sé á hendur hinum þremur stefndu einkahlutafélögum."

Jakob Valgeir komst fyrst í fréttirnar stuttu eftir bankahrunið 2008 vegna tengsla sinna við eignarhaldsfélagið Stím ehf.

Það félag er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara auk þess sem það er veigamikill þáttur í stefnu Glitnis gegn Jóni Ásgeir Jóhannessyni og aðilum tengdum honum í einkamáli bankans gegn þeim í New York.

Stímfeðgarnir Jakob Valgeir og Flosi hafa átt í rekstrarerfiðleikum með útgerðarfélag sitt Jakob Valgeir ehf., þrátt fyrir að hafa flutt línuskipið Þorlák og 40 prósent af kvóta skipsins af gamalli kennitölu yfir á aðra kennitölu í upphafi síðasta árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×