Kröfuhafarnir finna ekki Halabi 3. apríl 2010 11:40 Simon Halabi.
Kröfuhafar leita nú dyrum og dyngjum að sýrlenska fasteignamógúlnum Simon Halabi en hann varð gjaldþrota í vikunni. Halabi hafði byggt upp gríðarstórt fasteignaveldi í London á síðustu árum en hann mætti ekki fyrir dómara þegar hann var úrskurðaður gjaldþrota. Gjaldþrotið er vegna láns sem Halabi tók hjá Kaupthing Singer & Friedlander að uppjæð 56,3 milljónir punda. Lánið tók Halabi til þess að kaupa líkamsræktarstöðvakeðjuna Esporta árið 2007. Breska blaðið Times segir frá málinu í dag en Laura John, lögfræðingur Ernst & Young sem fer með slitastjórn yfir Kauphing S&F, segir að Halabi hafi ekki brugðist við gjaldþrotakröfunni og að menn væru „ekki vissir um" hvar Halabi sé niðurkominn. Lítið sem ekkert hefur sést til Halabis frá því á síðasta ári þegar verulega fór að halla undan fæti hjá honum, en hann hefur svosem úr nægu að velja þegar kemur að samastað. Hann á villu við Park Lane í London og er nágranni Róberts Tchenguiz, sem er sagður hafa kynnt hann fyrir fasteignabransanum í London. Sá hefur eins og menn vita einnig tengsl við Kaupþing. Fyrir utan villuna við Park Lane á Halabi óðal í Buckinghamshire, kastala í Suður Frakklandi og eina snekkju. Auk þessara híbýla á Halabi fjölmargar þekktar byggingar í London á borð við Aviva turninn og skrifstofur JP Morgan Chase. Byggingarnar eru metnar á um milljarð punda í dag og því telja menn ólíklegt að Halabi sé í raun og veru gjaldþrota, þó hann svari ekki lögmönnum slitastjórnar KSF.
Mest lesið „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Viðskipti innlent Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Neytendur Fanney tekur við af Erni hjá Lex Viðskipti innlent Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Þórður Már til Faxaflóahafna Viðskipti innlent Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Viðskipti innlent Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Viðskipti innlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira