Körfubolti

Sigurður: Menn lögðu sig ekki fram

Elvar Geir Magnússon skrifar
Sigurður Ingimundarson áhyggjufullur á svip í leiknum í kvöld. Mynd/Vilhelm
Sigurður Ingimundarson áhyggjufullur á svip í leiknum í kvöld. Mynd/Vilhelm
„Þetta var bara lélegt. Það hafði enginn fyrir hlutunum hjá okkur, þegar menn leggja ekki sig fram þá er þetta ekki erfitt heldur bara lélegt," sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkinga, eftir tapið á heimavelli gegn Keflavík.

Hans menn eru í erfiðri stöðu eftir þessi úrslit í kvöld. Keflvíkingar eru komnir í 2-0 og geta á sunnudag tryggt sér sæti í úrslitunum.

„Þetta var ekki það sem við ætluðum að gera. Þessi leikur hefur ekkert áhrif á leikinn á sunnudaginn. Það er annar leikur og hann tengist þessum leik ekki á neinn hátt," sagði Sigurður í viðtali við Stöð 2 Sport .




Fleiri fréttir

Sjá meira


×