Körfubolti

IE-deild karla: KR stöðvaði Fjölni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pavel Ermolinskij var með þrefalda tvennu í kvöld.
Pavel Ermolinskij var með þrefalda tvennu í kvöld.

Fjölnismenn hafa flogið hátt í Iceland Express-deild karla. Lagt Njarðvík, Grindavík og Snæfell af velli. Sigurganga þeirra var síðan stöðvuð í kvöld er þeir mættu Íslandsmeisturum KR vestur í bæ.

KR mátti þó hafa verulega fyrir sigrinum enda var leikurinn í járnum nánast allan tímann. KR-ingar þó sterkari á lokasprettinum.

Pavel Ermolinskij átti svakalega leik fyrir KR og var með þrefalda tvennu í kvöld.

Njarðvík hristi af sér slenið og vann sinn fyrsta leik í fimm tilraunum er Hamar kom í heimsókn.

Úrslit kvöldsins:

KR-Fjölnir  80-75

Stig KR: Darri Hilmarsson 22, Tommy Johnson 14, Pavel Ermolinskij 13 (14 fráköst, 11 stoðs.), Brynjar Þór Björnsson 13, Skarphéðinn Ingason 7, Finnur Magnússon 5, Fannar Ólafsson 4, Jón Orri Kristjánsson 2.

Stig Fjölnis: Christopher Smith 28, Magni Hafsteinsson 11, Ægir Þór Steinarsson 11, Arnþór Freyr Guðmundsson 10, Tómas Heiðar Tómasson 7, Níels Dungal 4, Sindri Kárason 4.

Njarðvík-Hamar  103-94

Stig Njarðvíkur: Jóhann Árni Ólafsson 21, Kristján Rúnar Sigurðsson 19, Guðmundur Jónsson 16, Nick Bradford 16, Egill Jónasson 9, Friðrik Stefánsson 7, Rúnar Erlingsson 6, Páll Kristinsson 5, Hjörtur Hrafn Einarsson 4.

Stig Hamars: Andre Dabney 26, Páll Helgason 21, Marvin Valdimarsson 16, Svavar Páll Pálsson 11, Oddur Ólafsson 11, Viðar Örn Hafsteinsson 9.

ÍR-Keflavík  84-103

Stig ÍR: Steinar Arason 27, Nemanja Sovic 19, Kristinn Jónasson 13, Michael Jefferson 10, Eiríkur Önundarson 10, Ásgeir Örn Hlöðversson 3, Elvar Guðmundsson 2.

Stig Keflavíkur: Draelon Burns 25, Hörður Axel Vilhjálmsson 20, Gunnar Einarsson 16, Sigurður Þorsteinsson 15, Uruele Igbavboa 10, Sverrir Sverrisson 9, Þröstur Jóhannsson 6, Gunnar Stefánsson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×