Körfubolti

Fannar: Áttum að vinna þennan leik

Elvar Geir Magnússon skrifar
Fannar á ferðinni í kvöld. Mynd/Valli
Fannar á ferðinni í kvöld. Mynd/Valli

„Við vorum betri framan af en förum í einstaklingsframtök og eitthvað helvítis kjaftæði í lokin," sagði Fannar Helgason, leikmaður Stjörnunnar eftir tapið gegn Grindavík í kvöld.

„Þetta var bara bull undir lokin, algjört bull," sagði Fannar sem segist ekki skilja hvað Jovan Zdravevski var að gera undir lokin þegar hann tók þriggja stiga skot í engu jafnvægi þegar nægur tími var til stefnu.

„Ég veit bara ekki hvað hann var að pæla. Hann hélt örugglega að það væri miklu minna eftir," sagði Fannar. „Grindavík er með hörkulið en það var bara algjört klúður hjá okkur að tapa þessum leik."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×