Um 1.500 viðskiptavinir vildu verða andlit Iceland 28. mars 2010 14:00
Um 1.500 viðskiptavinir Iceland lágvörukeðjunnar vildu verða andlit hennar út á við í nýrri auglýsingaherferð sem hefst síðar í ár. Búið er að velja 56 manns úr þessum hóp og í dag verður lokahópurinn valinn, að því er segir í frétt í Daily Star. Eins og kunnugt er af fréttum er Iceland nú að mestu, eða 79%, í eigu Íslendinga og þar af er eignarhlutur Landsbankans 69%. Fram að þessu hefur Iceland notað þekkta Breta sem andlit sitt og gegnir sjónvarpsstjarnan Coleen Nolan stöðunni í augnablikinu. Hún tók við af poppstjörnunni Kerry Katona eftir að sú lenti í kókaínhneyksli. Andlit úr lokahópnum í dag verða sett inn á vefsíðu Iceland í næsta mánuði og þar mun verða kosið á milli þeirra um stöðuna. Forráðamenn Iceland ákváðu að hætta að hafa frægan einstakling sem andlit sitt og velja frekar einn af viðskiptavinum sínum. Þar með telja þeir að viðskiptavinirnir sjálfir hafi meir að segja um stefnu keðjunnar og markaðssetningu hennar.
Mest lesið „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Viðskipti innlent Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Neytendur Fanney tekur við af Erni hjá Lex Viðskipti innlent Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Þórður Már til Faxaflóahafna Viðskipti innlent Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Viðskipti innlent Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Viðskipti innlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira