Körfubolti

Brynjar áfram í stuði og KR með fjögurra stiga forskot á toppnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Brynjar Þór Björnsson.
Brynjar Þór Björnsson. Mynd/Vilhelm
Brynjar Þór Björnsson var áfram í stuði þegar KR-ingar unnu 24 stiga sigur á Blikum í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. KR-ingar náðu fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar með þessum sigri þar sem Keflavík tapaði í Grindavík.

Morgan Lewis var með 24 stig í sínum fyrsta heimaleik með KR og Pavel Ermolinkij var aðeins einu frákasti og einni stoðsendingu frá því að vera með þrefalda tvennu þriðja leikinn í röð.

KR-Breiðablik 96-72 (52-36)

Stig KR: Brynjar Björnsson 25, Morgan Lewis 24, Pavel Ermolinkij 14 (9 frák., 9 stoðs.), Fannar Ólafsson 14, Jón Orri Kristjánsson 11, Darri Hilmarsson 4, Skarphéðinn Ingason 2, Steinar Kaldal 2.

Stig Breiðabliks: Jonathan Schmidt 23, Ágúst Angantýnsson 14, Þorsteinn Gunnlaugsson 13, Aðalsteinn Pálsson 5, Rúnar Pálmarsson 4, Jeremy Caldwell  4, Gylfi Geirsson 2, Hjalti Friðriksson 2, Trausti Jóhannsson 1.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×