Körfubolti

Jóhann Árni: Allir lögðu í púkkið

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Jóhann Árni Ólafsson lék vel í kvöld.
Jóhann Árni Ólafsson lék vel í kvöld. Mynd/Stefán

„Þetta var mjög erfiður leikur. Við þurftum að hafa virkilega fyrir þessu, lögðum okkur alla fram og sigruðum eins og við ætluðum okkur að gera. Stjarnan er með hörkulið, við erum með hörkulið eins og öll liðin sem eru í úrslitakeppninni," sagði Jóhann Árni Ólafsson, leikmaður Njarðvík, eftir sigur gegn Stjörnunni í fyrsta einvígi liðanna í átta liða úrslitum Iceland-Express deildarinnar í körfubolta.

„Þannig menn þurfa að mæta tilbúnir í alla leiki. Ég er mjög ánægður að mæta hér á útivöll og sigra í fyrsta leik".

Jóhann Árni átti góðan leik í kvöld, stigahæstur í liði gestanna með 21 stig.

Hann var ánægður með allt liðið í kvöld.

„Við spiluðum sem lið í kvöld, það lögðu allir í púkkið og frábær innkoma af bekknum reyndist okkur dýrmæt. Það voru allir að standa sig og við verðum klárir í næsta leik á mánudaginn kemur," sagði Jóhann ánægður eftir sigurinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×