Körfubolti

Fjórir Keflvíkingar í sérflokki í plús og mínus í einvíginu á móti Njarðvík

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigurður Gunnar Þorsteinsson kemur vel út í plús og mínus.
Sigurður Gunnar Þorsteinsson kemur vel út í plús og mínus. Mynd/Vilhelm

Fjórir leikmenn Keflavíkurliðsins eru í algjörum sérflokki þegar kemur að plús og mínus tölfræðinni í fyrstu þremur leikjum Keflavíkur og Njarðvíkur í undanúrslitaeinvígi nágrannanna í Iceland Express deild karla.

Fjórði leikurinn fer fram í Njarðvík klukkan 19.15 í kvöld og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Keflavík tryggir sér sæti í lokaúrslitunum með sigri en vinni Njarðvík verður oddaleikur í Keflavík á fimmtudaginn.

Miðherjinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson kemur best út úr plús og mínus tölfræðinni en Keflavík hefur unnið þær 84 mínútur sem hann hefur spilað með 46 stigum. Keflavík hefur tapað með 13 stigum þær 36 mínútur sem hann hefur setið á bekknum.

Draelon Burns fylgir skammt á eftir Sigurði en Keflavík hefur unnið þær 102 mínútur sem hann hefur spilað með 43 stigum. Keflavík hefur tapað með 11 stigum þær 18 mínútur sem hann hefur setið á bekknum.

Gunnar Einarsson (+35) og Hörður Axel Vilhjálmsson (+34) eru síðan í 3. og 4. sæti en efsti Njarðvíkingurinn er miðherjinn Egill Jónasson en Njarðvík hefur unnið þær 30 mínútur sem hann hefur spilað með 5 stigum.

Langlægstur á listanum er Njarðvíkingurinn Jóhann Árni Ólafsson en Njarðvík hefur tapað með 42 stigum þær 79 mínútur sem hann hefur spilað sem þýðir að liðið hefur unnið með 9 stigum þær 40 mínútur sem Jóhann hefur setið á bekknum.

Hæsta plús og mínus í fyrstu þremur leikjunum:

Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Keflavík +46 (-13 án hans)

Draelon Burns, Keflavík +43 (-11 án hans)

Gunnar Einarsson, Keflavík +35 (-2 án hans)

Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík +34 (-1 án hans)

Jón Nordal Hafsteinsson, Keflavík +10 (+23 án hans)

Egill Jónasson, Njarðvík +5 (-38 án hans)

Þröstur Leó Jóhannsson, Keflavík +4 (+29 án hans)

Kristján Rúnar Sigurðsson, Njarðvík +3 (-36 án hans)

Hjörtur Hrafn Einarsson, Njarðvík +2 (-35 án hans)

Lægsta plús og mínus í fyrstu þremur leikjunum:

Jóhann Árni Ólafsson, Njarðvík -42 (+9 án hans)

Guðmundur Jónsson, Njarðvík -32 (-1 án hans)

Magnús Þór Gunnarsson, Njarðvík -30 (-3 án hans)

Nick Bradford, Njarðvík -27 (-6 án hans)

Friðrik E. Stefánsson, Njarðvík -26 (-7 án hans)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×