Bradford og Helgi Jónas spiluðu með Grindavík sem vann Hamar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2011 21:01 Nick Bradford lék með Grindavík í kvöld.
Nick Bradford og Helgi Jónas Guðfinsson spiluðu báðir stórt hlutverk í 87-76 sigri Grindavíkur á Hamar í Iceland Express deild karla í Grindavík í kvöld. Nick er nýkominn til liðsins og þjálfarinn Helgi Jónas spilaði með í kvöld en hann hefur nánast ekkert verið með í vetur. Saman skoruðu þeir þrettán stig í lokaleikhlutanum þar sem Grindavík tryggði sér sigurinn með því að vinna fjórða leikhlutann 28-15. Grindavík var fyrir leikinn búið að tapa fjórum deildarleikjum í röð og sigurinn var því langþráður hjá Helga Jónasi og lærisveinum hans. Hamarsmenn töpuðu hinsvegar í tíunda sinn í síðustu ellefu leikjum og sitja í fallsæti eftir þessa umferð. Páll Axel Vilbergsson skoraði 21 stig fyrir Grindavík í kvöld og Ryan Pettinella var með 16 stig og 11 fráköst. Mladen Soskic skoraði 14 stig og Nick Bradford var með 11 stig og 8 stoðsendingar í sínum fyrsta leik. Helgi Jónas skoraði 10 stig en hann og Nick voru báðir bara með fjögur stig fyrir lokaleikhlutann. Devin Antonio Sweetney skoraði 32 stig fyrir Hamar þar af 28 þeirra í fyrstu þremur leikhlutunum. Darri Hilmarsson var með 16 stig. Grindavík var með frumkvæðið í fyrsta leikhluta og náði um tíma fimm stiga forskoti í honum en var 23-21 yfir í lok hans. Hamarsliðið var hinsvegar með þriggja stiga forskot í hálfleik, 41-38, eftir að hafa skorað sex síðustu stigin í honum. Grindvíkingar skoruðu 9 af fyrstu 10 stigum seinni hálfleiksins og komnir ellefu stigum yfir í þriðja leikhlutanum, 46-35, þegar 4 og hálf mínúta var eftir en Hamarsmenn gáfust hinsvegar ekki upp, unnu lokakafla leikhlutans 26-13 og voru tveimur stigum yfir, 61-59, fyrir lokaleikhlutann. Grindavík náði aftur forystu í upphafi fjórða leikhluta og nú tókst þeim að stinga Hamarsmenn af og tryggja sér ellefu stiga sigur. Grindavík-Hamar 87-76 (23-21, 15-20, 21-20, 28-15)Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 21/5 fráköst, Ryan Pettinella 16/11 fráköst, Mladen Soskic 14/5 stoðsendingar, Nick Bradford 11/4 fráköst/8 stoðsendingar, Helgi Jónas Guðfinnsson 10, Ólafur Ólafsson 7, Ármann Vilbergsson 6, Björn Steinar Brynjólfsson 2.Stig Hamars: Devin Antonio Sweetney 32/9 fráköst, Darri Hilmarsson 16/5 fráköst, Lárus Jónsson 9/5 fráköst, Kjartan Kárason 5, Ellert Arnarson 4, Svavar Páll Pálsson 4/8 fráköst, Ragnar Á. Nathanaelsson 4/6 fráköst/4 varin skot, Snorri Þorvaldsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Sport Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Fótbolti Elvar Már til Póllands Körfubolti Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Körfubolti „Við erum alls ekki hættir, þetta er rétt að byrja“ Fótbolti Fleiri fréttir Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Elvar Már til Póllands Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjá meira