Evran hefur gefið eftir í vikunni 10. mars 2011 12:21
Evran hefur gefið nokkuð eftir þessa vikuna og er komin á svipaðar slóðir og hún var um miðja síðustu viku. Nú þegar þetta er ritað (kl. 11:45) stendur evru/dollar krossinn í 1,3830 en í vikubyrjun náði hann sínu hæsta gildi á árinu, eða 1,4039. Ekki er loku fyrir það skotið að krossinn muni lækka enn frekar, en nú í morgunsárið tilkynnti matsfyrirtækið Moody´s að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir Spánar á langtímaskuldbindingum um eitt þrep, þ.e. úr Aa1 í Aa2. Ekki er langt um liðið síðan matsfyrirtækið lækkaði síðast lánshæfismat Spánar, en það var í septemberlok sem einkunnir þess voru lækkaðar úr Aaa í Aa1. Horfur um lánshæfismat Spánar eru jafnframt neikvæðar og er því ekki öll nótt úti um að einkunnir þess komi til með að lækka enn frekar næsta kastið. Endurspeglar það sjónarmið fyrirtækisins um að áætlun spænska ríkisins um að hreinsa til í bankakerfi landsins komi til með að reynast dýrari en Spánverjar reikna með og þar með auka enn á skuldabyrði landsins. Sem kunnugt er lækkaði matsfyrirtækið lánshæfiseinkunnir Grikklands niður um þrjú þrep í byrjun vikunnar, þ.e. úr Ba1 í B1, og er ljóst að fyrirtækið telur verulega aukna áhættu á greiðslufalli ríkissjóðs þar í landi.
Mest lesið Byrja að fljúga til Tromsø og oftar til Bergen Viðskipti innlent Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Neytendur Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Viðskipti innlent „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Samstarf Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Viðskipti erlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira