Samráð um þvottaduft kostar 51 milljarð í sekt 14. apríl 2011 11:38
Risafyrirtækin Unilever og Procter & Gamble hafa verið sektuð um 315 milljónir evra eða rúmlega 51 milljarð kr. vegna verðsamráðs um sölu á þvottadufti. Fyrirtækin komu sér saman um verðlagningu á þvottadufti í átta Evrópulöndum. Fjallað er um málið í BBC. Þar segir að sektin sé niðurstaða af þriggja ára langri rannsókn sem gerð var að undirlagi framkvæmdastjórnar ESB. Rannsóknin hófst eftir ábendingu frá þýska fyrirtækinu Henkel. Upphaflega áttu Unilever og Procter & Gamble að fá enn hærri sekt en hún var minnkuð um 10% þar sem bæði fyrirtækin viðurkenndu samráð sitt. Upphæðin skiptist þannig að Unilever á að borga um 16 milljarða kr. og Procter & Gamble um 35 milljarða kr. Löndin þar sem verðsamráðið átti sér stað voru Belgía, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Grikkland, Portúgal, Spánn og Holland og það stóð yfir árin 2002 til 2005. Þvottaduftið sem hér um ræðir var af tegundunum Tide, Gain, Era, Omo og Surf.
Mest lesið Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Neytendur Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Viðskipti erlent Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Viðskipti innlent Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Samstarf Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Viðskipti innlent Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Viðskipti erlent Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira