Fótbolti

Riðlarnir í Evrópudeildinni - Eiður á slóðir föður síns

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Porto er núverandi meistari í Evrópudeild UEFA.
Porto er núverandi meistari í Evrópudeild UEFA. Nordic Photos / AFP
Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í AEK Aþenu drógust í riðil með Anderlecht frá Belgíu sem Arnór Guðjohnsen, faðir Eiðs, spilaði með á árum áður við góðan orðstír. Dregið var í riðla í Evrópudeildinni í hádeginu.

AEK Aþena, sem Elfar Freyr Helgason er einnig á mála hjá, og Anderlecht eru í L-riðli ásamt rússneska liðinu Lokomotiv Moskvu og Sturm Graz frá Austurríki.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í AZ Alkmaar drógust í G-riðil. Þar mæta þeir Metalist Kharkiv frá Úkraínu, Austria Vín frá Austurríki og Malmö FF frá Svíþjóð.

Ragnar Sigurðsson og Sölvi Geir Ottesen liðsmenn FC Kaupmannahafnar eru í B-riðli ásamt Standard Liege frá Belgíu, Hannover frá Þýskalandi og Vorskla Poltava frá Úkraínu.

Rúrik Gíslason og félagar í OB Odense drógust í K-riðil. Þar mæta þeir Twente frá Hollandi, Fulham frá Englandi og Wisla Krakow frá Póllandi.

48 lið taka þátt í riðlakeppninni en forkeppninni lauk í gær. Liðunum er skipt í tólf fjögurra liða riðla. Tvö efstu liðin komast svo áfram í 32-liða úrslit keppninnar en þá bætast í hópinn þau átta lið sem urðu í þriðja sæti sinna riðla í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.





Riðlarnir

A-RIÐILL

1. Tottenham Hotspur (Englandi)

2. Rubin Kazan (Rússlandi)

3. PAOK Saloniki (Grikklandi)

4. Shamrock Rovers (Írland)

B-RIÐILL

1. FC Kaupmannahöfn (Danmörku)

2. Standard Liege (Belgíu)

3. Hannover (Þýskalandi)

4. Vorskla Poltava (Úkraínu)

C-RIÐILL

1. PSV Eindhoven (Hollandi)

2. Hapoel Tel-Aviv (Tyrklandi)

3. Rapid Búkarest (Rúmeníu)

4. Legia Varsjá (Póllandi)

D-RIÐILL

1. Sporting Lissabon (Portúgal)

2. Lazio (Ítalíu)

3. Zürich (Sviss)

4. Vaslui (Rúmeníu)

E-RIÐILL

1. Dynamo Kiev (Úkraínu)

2. Beşiktaş (Tyrklandi)

3. Stoke City (Englandi)

4. Maccabi Tel-Aviv (Ísrael)

F-RIÐILL

1. Paris Saint-Germain (Frakklandi)

2. Athletic Bilbao (Spáni)

3. Salzburg (Austurríki)

4. Slovan Bratislava (Slóvakíu)

G-RIÐILL

1. AZ Alkmaar (Hollandi)

2. Metalist Kharkiv (Úkraínu)

3. Austria Vín (Austurríki)

4. Malmö FF (Svíþjóð)

H-RIÐILL

1. Braga (Portúgal)

2. Club Brugge (Belgíu)

3. Birmingham (Englandi)

4. Maribor (Slóveníu)

I-RIÐILL

1. Atletico Madrid (Spáni)

2. Udinese (Ítalíu)

3. Rennes (Frakklandi)

4. Sion (Sviss)

J-RIÐILL

1. Schalke (Þýskalandi)

2. Steaua Búkarest (Rúmeníu)

3. Maccabi Haifa (Ísrael)

4. AEK Larnaca (Kýpur)

K-RIÐILL

1. Twente (Hollandi)

2. Fulham (Englandi)

3. OB Odense (Danmörku)

4. Wisła Krakow (Póllandi)

L-RIÐILL

1. Anderlecht (Belgíu)

2. AEK Aþenu (Grikklandi)

3. Lokomotiv Moskva (Rússlandi)

4. Sturm Graz (Austurríki)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×