Haukarnir unnu sinn fyrsta sigur í Iceland Express deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2011 21:03 Emil Barja lék vel með Haukum í kvöld. Mynd/Stefán
Haukar fögnuðu sínum fyrsta sigri í Iceland Expreess deild karla í vetur þegar þeir unnu 78-73 sigur á Fjölni á Ásvöllum í kvöld. Fjölnismenn voru búnir að vinna tvo deildarleiki í röð fyrir leikinn en Haukarnir voru hinsvegar búnir að tapa fyrstu fjórum deildarleikjum sínum. Christopher Smith var sínum gömlu félögum erfiður og skoraði 24 stig fyrir Hauka í leiknum en Emil Barja var með 14 stig og Jovanni Shuler bætti við 12 stigum og 18 fráköstum. Nathan Walkup skoraði 22 stig fyrir Fjölni og Calvin O'Neal var með 20 stig en Árni Ragnarsson var stigahæsti íslensku leikmannanna með 15 stig. Fjölnir lék án leikstjórnanda síns Ægirs Þórs Steinarssonar í kvöld. Leikur var jafn í byrjun en Fjölnir náði frábærum kafla í lok fyrsta leikhlutans og breytti stöðunni úr 9-10 í 9-19 á rúmum tveimur mínútum. Fjölnir var síðan 19-10 yfir eftir fyrsta leikhlutann þar sem þeir Calvin O'Neal og Nathan Walkup voru stigahæstir með sex stig. Fjölnir skoraði fyrstu körfu annars leikhluta og komst í 21-10 en Haukar svöruðu með 11 stigum í röð á tæpum tveimur mínútum þar af voru þrír þristar í röð. Staðan var því orðin jöfn, 21-21. Fjölnismenn voru áfram skrefinu á undan og 37-31 yfir þegar tvær og hálf mínúta var eftir. Haukarnir skoruðu hinsvegar sjö síðustu stig hálfleiksins og voru 38-37 yfir í hálfleik. Christopher Smith var kominn með 14 stig í hálfleik. Það var jafnt á flestum tölum í þriðja leikhlutanum en Haukar voru 56-55 yfir í lok hans eftir að hafa skorað fjögur síðustu stigin. Haukar náðu frábærum kafla um miðjan fjórða leikhlutann þegar þeir skoruðu sjö stig í röð og breyttu stöðunni úr 58-58 í 65-58. Fjölnisliðið náði að koma til baka og komast yfir í 69-70 en Haukarnir voru sterkari í lokin og tryggðu sér sigur með því að skora fimm síðustu stigin í leiknum.Haukar-Fjölnir 78-73 (10-19, 28-18, 18-18, 22-18)Haukar: Christopher Smith 24/5 fráköst/7 varin skot, Emil Barja 14/5 fráköst, Jovanni Shuler 12/18 fráköst, Sævar Ingi Haraldsson 10/4 fráköst/5 stoðsendingar, Davíð Páll Hermannsson 6, Örn Sigurðarson 5/8 fráköst, Helgi Björn Einarsson 4, Óskar Ingi Magnússon 3.Fjölnir: Nathan Walkup 22/5 fráköst, Calvin O'Neal 20/7 fráköst, Árni Ragnarsson 15/5 fráköst, Jón Sverrisson 6/11 fráköst, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 5, Hjalti Vilhjálmsson 3, Trausti Eiríksson 2/7 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira